Brúarskóli

Sérskóli, 3.-10. bekkur

Vesturhlíð 3
105 Reykjavík
Ísland

Brúarskóli

Brúarskóli

Um Brúarskóla
Brúarskóli er sérskóli í Reykjavík sem var stofnaður árið 2003 fyrir börn sem eiga við alvarleg geðræn, hegðunar eða félagsleg vandamál, úr sveitarfélögum Reykjavíkur og nágrennis. 
Brúarskóli er með fjórar starfsstöðvar en meginaðsetur skólans er í Vesturhlíð. Brúarskóli er hugsaður sem tímabundin skólavist með það lokamarkmið að kenna nemendum þá færni sem þarf til að stunda nám í sínum heimaskóla. Þá er lögð áhersla á kennslu í samræmi við áhuga og getu hvers og eins og á sama tíma er reynt að styrkja félags- og samskiptahæfni nemenda ásamt því að kenna tilfinningastjórnun.

Fjöldi nemenda er breytilegur milli ára og yfir skólaárið og starfsmenn í Brúarskóla eru stjórnendur, kennarar, ráðgjafarþroskaþjálfi, atferlisþjálfarar og stuðningsfulltrúar.

Skólinn hefur einnig ráðgefandi hlutverk  í málum einstakra nemenda um allt land, ásamt fræðslu um erfiða hegðun og verklegri kennslu.  

Almenn umsókn um skólavist sækið um hér.

Umsókn um skólavist í unglingadeild í allt að 16 vikur:

Hægt er að sækja um skólavist fyrir nemendur á unglingastigi í allt að 16 vikur. Þátttaka í heimaskóla fer eftir aðstæðum og mati teymis hverju sinni. 

Brúarskóli tekur þátt í aðlögun fyrir nemanda aftur í heimaskóla.

Sækið um hér.

Umsókn um bráðaúrræði Brúarskóla í 4 vikur: 
Heimaskóli getur sótt um bráðaúrræði ef upp kemur alvarlegt atvik eða annað sem leiðir til þess að nauðsynlegt sé að barn fái tímabundna skólavist í Brúarskóla í 4 vikur. 

Sækið um hér.

Fræðsla og verkleg kennsla á vegum Brúarskóla                                                                                 Brúarskóli býður upp á bóklega fræðslu um krefjandi hegðun fyrir alla starfsmenn í almennum grunnskólum.
Við bjóðum einnig upp á verkleg námskeið þar sem unnið er eftir 13. gr reglugerðar um ábyrgð og skyldur starfsfólks í grunnskólum. 

Sækið um fræðslu og/eða verklegt námskeið hér.

Ráðgjöf í máli einstaka nemanda í grunnskólum um land allt

Brúarskóli hefur ráðgefandi hlutverk gagnvart almennum grunnskólum um land allt. Hægt er að sækja um ráðgjöf og fá aðkomu stoðþjónustu Brúarskóla í málum nemanda með hegðunarvanda. 

Forgangur fyrir 1.-3. Bekk í Reykjavík..
Sækið um ráðgjöf hér.

 

Fréttir